sunnudagur, 31. janúar 2010

Músin á erfitt

Það er búið að ganga alveg ótrúlega vel um helgina. Það er svo ótrúlegt hvað Krumminn kveinkar sér lítið. Hann fer bara um á hnjánum eða rassinum ef hann getur ekki gengið. Stundum skjögrar hann hér um heimilið en aldrei kvartar hann. Einstöku sinnum segir hann að honum sé illt í maganum, skríður í fangið á mömmu eða pabba og fær bakstrjúk. Töflutakan gengur alltaf betur og betur og tekur hver töflustund núna ekki nema 5-10 mínútur. Það er samt svo skrítið að þegar Krummanum líður vel þá finn ég til í sálinni. Þá hef ég tíma til að hugsa og finn allt of vel fyrir steinhellunni sem liggur þungt á brjósti mér. Ég vil samt að sjálfsögðu fá fleiri steinhelludaga en annasama umönnunardaga.

Raunveruleikinn er að skella á Músinni. Mér finnst svo leiðinlegt að það eru allir alltaf með Gunnari þegar hann er veikur en ekki mér. Mér finnst svo leiðinlegt að vera gera svona mikið skemmtilegt og Gunnar er aldrei með mér. Ég get ekki einbeitt mér. Músin hágrætur. Hleypur inn á klósett og lokar á eftir sér. Ég get ekki stillt mig, flóðgáttir bresta þegar ég reyni að pikka upp lásinn á baðherbergishurðinni. Ég reyni að róa hana og tek hana í fangið. Syng fyrir hana lagið hennar og hún grætur og grætur. Ég get bara ekki hætt að gráta segir hún. Það gerir ekkert til ástin mín, svara ég. Þessa dagana má maður gráta.

8 ummæli:

  1. Ég hlakka svo til að fá að eiga frænkustundir með músinni. Ég man hvað mínar frænkustundir með þér elsku Signý, voru í miklu uppáhaldi hjá mér og litla duglega músin þín á svo sannarlega skilið slíkar gleði stundir.
    Hún er sú allra besta og er að standa sig eins og hetja við hliðina á litla duglega bróðir sínum.

    Knúsar og kossar á ykkur öll.
    Anna Guðný

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir, Signý, að taka þér tíma frá dýrmætum sunnudegi heimavið til að kíkja niður og upplýsa okkur um stöðuna. Þið munið sigrast á þessu, það erum við sannfærð um, Gunnar Hrafn er svo sterkur strákur.
    Músin ykkar lék sér við vinkonu sína með hlátrasköllum líkt og venjulega og virtist alveg ná að gleyma sér í svolitla stund. En þegar þörfin fyrir samveru við bróðurinn náði yfirhöndinni var nú gott að það var stutt að fara heim. Minnum á að við erum alltaf með aukabílstól í bílnum og bara eitt bank eða símtal í burtu.

    Gangi ykkur vel,
    Hanna, Maggi og Rakel Eir

    SvaraEyða
  3. Elsku hjartans Signý og øll fjølskyldan. Sendi ykkur mínar hlýjustu hugsanir og baráttukvedjur á thessum erfidu tímum. Thid standid ykkur eins og hetjur.

    Mínar beztu kvedjur til ykkar.

    Kolbrún Svavars- og Ernudóttir.

    SvaraEyða
  4. Elsku fjölskylda!!
    Okkur setti hljóð er við fréttum að sonur ykkar væri svona mikið veikur, Óli gaf okkur upp bloggsíðuna ykkar og höfum við fylgst með og munum gera áfram, það er aðdáunarvert að lesa hvað þið sýnið mikið æðruleysi og hvað kraftur ykkar er mikill og er það von okkar og trú að allt muni ganga vel.
    Megi allar góðar vættir halda verndarhendi yfir litla sæta drengnum ykkar og veita honum styrk í baráttuni sem framundan er.
    Guð blessi ykkur öll.
    Baráttukveðjur
    Helga og Ari Stakkhömrun áður Jóruseli

    SvaraEyða
  5. Þið eruð sannkallaðar hetjur að geta tekist á við þetta stóra, stóra verkefni sem ykkur var rétt.
    Litla músin, hvað þetta hlýtur að taka á hana litla skinnið. Að horfa á bróður sinn svona veikan, mömmu og pabba að reyna að standa sig og brosa. Ég veit að ég myndi gráta úr mér augun og eins og þið segið þá má gráta núna.
    Ég hugsa til ykkar á hverjum degi og óska þess að Krumminn litli standist þessa raun og þið öll. Það veit Guð að þetta er erfitt og maður skilur ekki tilganginn né hvaða lærdóm við eigum að draga af þessu.
    Það er mjög gott að fá að fylgjast með gangi mála og þú Signý mín ert meistarapenni (enda blaðakona).
    Verið áfram hetjur elskurnar og gangi ykkur vel.

    Baráttukveðja
    Ósk

    SvaraEyða
  6. Sæl Signý. Við Ólöf vitum hvað þið eruð að ganga í gegnum, Óli var með hvítblæði í fyrra. Ekki hika við að hafa samband ef við getum hjálpað. Ég sendi þér póst áðan á moggameilið.
    Kv.
    Helgi Snær á menn.deild

    SvaraEyða
  7. Kaera Signy og fjolskylda.
    Hugur minn er hja ykkur.
    Gud gefi ykkur styrk,
    Hlyjar kvedjur fra London
    Gunnhildur Bardardottir

    SvaraEyða