fimmtudagur, 28. janúar 2010

Fallegar stundir

Íslenskufræðingurinn og blaðamaðurinn hefur ákveðið að ritskoða hvorki né prófarkalesa það sem hér fer inn. Skrifflæðið er mín meðferð. Ég fæ engin krabbameinslyf og þarf ekki að fara í beinmergsástungur en óska þess svo heitt að ég gæti gert það fyrir elsku barnið mitt. Í staðinn skrifa ég, fyrir mig til að líða betur, fyrir okkur til að muna og fyrir ykkur elsku fjölskylda og vinir til að fylgjast með.

Það er ekki hægt að fara að telja upp alla sem hafa reist stuðningsklettabelti í kringum okkur síðustu daga. Við metum alla aðstoð ó, svoo mikið. Það hefur verið yndislegt að fá heimsóknir og er Krumminn aldrei glaðari en þegar stofan er full af fólki. Ömmur og afar, mágkona, frænkur og frændur og vinir eru helstu leikfélagar Krummans þessa dagana. Okkur þykir líka alveg óskaplega gott að finna fyrir stuðningi ykkar í athugasemdum, sms-um og tölvupóstum.

Í dag áttum við tvær alveg ótrúlega fallegar stundir. Í morgun fórum við niður í leikstofu og þar var kór Mýrarhúsaskóla að syngja. Kórinn samanstóð af mörgum fallegum börnum sem voru svo ótrúlega dugleg þegar þau stóðu saman í hóp og sungu fyrir veiku börnin. Ég sem klökkna yfirleitt ef ég heyri einhvers konar söngtóna koma frá börnum gerði það ekki í morgun. Ekki fyrr en þrjár unglingsstúlkur stigu framfyrir kórinn og sungu lagið Yndislegt líf. Þetta lag söng Svenni fyrir Gunnar Hrafn í skírninni hans. Við vorum bara 15 í skírninni heima í stofu í Þorláksgeislanum og Svenni tók Krummann sinn í fangið og söng fyrir hann. Við grétum þá og við grétum aftur í morgun.

Seinna í dag lagði Krumminn sig. Allt í einu heyrðist í honum upp úr svefni; Þetta er gott. Þetta er gott. Þá brustu flóðgáttir líka. Mamman er þakklát fyrir ljúfan svefn. Krummanum líður alla vega vel í draumahöllinni sinni.

Eins og sést á þessari færslu er ég ekki búin að mastera svefninn eins og grátinn. En það kemur að því.

8 ummæli:

  1. Hver dagur í raun, er dagurinn þinn
    Og dagur sem liðinn er betri
    Hvert verkefni unnið, er vinningur þinn
    Og von um framtíð betri.

    SvaraEyða
  2. Hugur minn er hjá ykkur elsku Signý og fjölskylda. Mikið ofboðslega eru fallegar frásagnir af þessu erfiða verkefni sem þið eruð að takast á við. Baráttuknús Sara Hrund

    SvaraEyða
  3. Elsku Signý.

    Sá bloggið á facebook og kíkti. Er búin að vera í sjokki síðan og finn svo til með ykkur. Skrif þín eru svo einlæg og fallega skrifuð. Vinkona mín sem var í sömu sporum fyrir nokkrum árum sagði mér að bloggið hefði einmitt bjargað henni og það hefði verið gott að fá útrás í gegnum skrifin.

    Hugur minn er hjá ykkur,
    Kveðja, Sóley (Kvennópía)

    SvaraEyða
  4. Elsku fjölskylda,

    hugur okkar liggur hjá ykkur. Óska ykkur alls hins besta á erfiðum tímum.

    Valdi, Hrönn, Guðjón Andri, Adrían og Sunneva.

    SvaraEyða
  5. Elsku Sveinn og Signý,

    Hugsa stöðugt til ykkar allra. Og reyni hvað ég get að senda ykkur öllum andlegan styrk.

    Kveðja
    Kristín Linda

    SvaraEyða
  6. Elsku Signý, sendi alla mína jákvæðu strauma til ykkar allra. Gangi ykkur vel.

    Benedikta frænka

    SvaraEyða
  7. Elsku Signý,
    Ég sendi ykkur alla þá fallegu strauma og jákvæðni sem ég á til.
    Baráttukveðjur til ykkar allra, kær kveðja Milla

    SvaraEyða
  8. Fallegur var söngurinn hjá kór Mýrarhúsaskóla, sá hann í fréttunum. Mikil og sterk vináttubönd verða til á Barnadeildinni og veit ég það því að ég var í búðkaupi í haust þar sem einn hjúkrunarfræðingurinn mætti, hún hafði annast dóttur brúðhjónanna þegar hún var í meðferð gegn hvítblæði. Enn svona löngu eftir að meðferð lauk er hún hluti af fjölskyldunni ;) Ótrúlega frábært teymi sem annast alla fjölskylduna þarna.
    Ég sæki styrk í þessa litlu dömu er ég hugsa til ykkar ;)
    Gangi ykkur vel elskurnar ;)
    Kær kveðja María Sturlu.

    SvaraEyða