föstudagur, 29. janúar 2010

Nú liggur vel á mér


Morguninn er svolítið erfiður. Krummanum er illt í maganum, vill ekkert borða og kastar svo upp. Það er óneitanlega erfitt að hjálpa veika kroppnum að gubba. Hann er allur svo viðkvæmur og flæktur í slöngur. Honum líður strax betur þegar hann er búinn að losa sig við eina gusu. Hann fær ógleðistillandi og verður svona líka ótrúlega hress.

Hann fer niður á leikstofu með okkur og englinum með ósýnilegu vængina. Þar sér hann bleikan rafmagnsbíl og fær að leika sér í honum. Hann gefur allt í botn og brunar um ganga spítalans á bleikum jeppa. Pabbi hans hleypur á eftir honum með snúrurnar og vökvann. Frasar eins og; Sjáumst á morgun, ókei bæ, nei djók heyrast frá Krummanum. Það liggur vel á honum og okkur líka.

19 ummæli:

  1. Helen Garðarsdóttir29. janúar 2010 kl. 14:02

    æ frábærar fréttir að hann getur leikið sér :) góðar fréttir með blóðkornatöluna líka! Takk fyrir nýjustu fréttir. :)
    kveðja Helen

    SvaraEyða
  2. KrúttKrumminn :) gaman að hann getur leikið sér. Sætastur á myndinni :).
    Ótrúlega gott að geta fylgst með ykkur hér. Hugur minn (og Birgis) er hjá ykkur!
    Knús og klemm,
    Björg

    SvaraEyða
  3. hann er svo mikið krútt =)

    kveðja Alva.

    SvaraEyða
  4. Erum alltaf að hugsa til ykkar -
    Kveðjur, Björk & Hlynur

    SvaraEyða
  5. Amma Sjöfn

    Falleg mynd svo gott að sjá hann brosa
    kysstu engilinn frá mér....

    Kveðja Amma Sjöfn

    SvaraEyða
  6. Elsku Signý, Svenni og Regína Sjöfn, við hér í leikskólanum sendum ykkur innilegar óskir um að áfram gangi vel og að við fáum að sjá Gunnar Hrafn sem fyrst aftur
    knús og kossar á litla duglega drenginn.
    kærar kveðjur
    Ingibjörg

    SvaraEyða
  7. Eftir að hafa fengið þessar sláandi fréttir af Stjörnufélaga þá ákvað ég að kíkja hérna inn og fá nánari fréttir. Þvílík rússibanaferð sem að þið eruð búin að vera í. Okkar hugur er hjá ykkur og fjölskyldum ykkar. En mikið rosalega er gott að það sé hægt að fá bros líka inn á milli :) Báráttukveðjur, gamlir Þorláksgeisla 33 nágrannar en núverandi Þorláksgeisla 29 grannar.(Bjarki Freyr / Stjörnufélagi)

    SvaraEyða
  8. Gaman að sjá svona fallega mynd af þér krúttið mitt.

    SvaraEyða
  9. Elsku hjartans Signý og fjölskylda!!!

    Úff hvað mér er þungt um hjartarætur að hugsa um það sem þið þurfið að fara í gegnum. Elsku litli drengurinn ykkar er samt greinilega algjör hetja og það á eftir að hjálpa honum og ykkur mikið.

    Ég hugsa til ykkar og bið fyrir ykkur, knús, Elva Dögg (vinnufélagi frá Úlfljótsvatni...)

    SvaraEyða
  10. Algjör perla þessi strákur ykkar sem og þið hin þrjú elskurnar. Gott að sjá hann brosa...og jákvætt með tölurnar á hvítu blóðkornunum ! Kíki á ykkur og knúsa eftir helgina elskurnar. Góða helgi ! Knús og kossss, Begga, Steini, Ólafur Jóhann og Andri Már.

    SvaraEyða
  11. Elsku fjölskylda
    Ég vona að allt gangi vel og hugur minn er hjá ykkur öllum á þessum erfiðu tímum. Það var alveg yndislegt að fá að sjá hann Gunnar Hrafn og öll hin börnin á Stjörnunni síðasta föstudag þegar ég byrjaði að vinna aftur samhliða skólanum!

    Ég á eftir að sakna þess að fá ekki að sjá fallega brosið hans á hverjum degi en ég hef fulla trú á að hann nái sér fljótt því hann er jú svo sterkur og ákveðinn strákur :)

    Kossar, knús og endalausar baráttukveðjur! ;*
    Kristín Friðriksd. (stjarnan, geislabaugur)

    SvaraEyða
  12. Greinilega góður dagur eftir að ógleðin hvarf.
    Gott að sjá hann brosa svona:) Alveg sætastur.
    Knús og baráttukveðjur frá okkur Sigurjóni

    SvaraEyða
  13. Elsku Svenni og Signý.
    Við hugsum hlýtt til ykkar og fjölskyldu ykkar á þessum erfiðu stundum. Baráttukveðjur, Siggi og Halla

    SvaraEyða
  14. Gaman að sjá kútinn með bros á vör. Héðan úr Móanum streyma miklir og góðir straumar til ykkar allra.
    Elín E.

    SvaraEyða
  15. Elsku vinir

    Þegar ég hugsa til ykkar að þá hugsa ég gleðina og kraftinn sem í ykkur býr og maður hefur oft fengið að njóta.
    Ég sé í brosi litla gæjans að hann ber þessa kosti ykkar líka svo um munar.

    Baráttukveðjur úr Fossvoginum,
    Alli

    SvaraEyða
  16. Flott mynd af drengnum, vonandi gengur þetta allt vel hjá ykkur. Góðar kveðjur.
    Kristbjörg og Walter

    SvaraEyða
  17. Mikið er gaman að sjá þetta fallega bros.
    Ég hlakka til að fá að faðma hann í sumar.
    Góðar kveðjur
    Sólveig

    SvaraEyða
  18. Mikið er gott að sjá fallegt bros á fallegum dreng. Þið eruð öll hetjur.
    Kærleikskveðjur
    Gróa

    SvaraEyða
  19. Elsku vinir við hugsum til ykkar. Knús og kossar til Gunnars Hrafns. Mikið er gott að geta fylgst með hvernig allt gengur hjá ykkur og fundið að það koma góðar stundir inn á milli.
    Bestu kveðjur til ykkar allra. Kata og Guðni

    SvaraEyða