Það er eitthvað í mér, en ég hef ekki viljað klæða Krummann í sjúkrahúsföt. Ég vil að hann sé í sínum náttfötum. Þá finnst mér hann ekki vera eins veikur. Ég vil líka ekki þurfa horfa upp á hann missa fallega hárið sitt, því sjúklingar missa hárið. Ekki sonur minn. Í dag kemur Gummi rakari í heimsókn í Grafarholtið. Feðgarnir og ellefu ára frændinn fá allir eins burstaklippingu, hver öðrum fallegri. Ég geymi einn lokk af ljósa hárinu hans.
sunnudagur, 31. janúar 2010
Fagrir feðgar

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Mikið eru þið fallegir strákarnir mínir.
SvaraEyðaKveðja Sjöfn amma
Flottir feðgar í stíl!!
SvaraEyðaSvo fallegar myndir - og ég segi gott mál með að hafa hann í sínum náttfötum, mjög góð hugmynd. Vonandi var ekki of erfitt að fara upp á spítala aftur - auðvitað er gott að komast heim, en stundum getur það orðið erfiðara að fara að heiman aftur get ég ímyndað mér.
SvaraEyðaÞið eruð hetjurnar mínar og mega knús til músarinnar sem er flottasta systir í alheiminum!
x
Sara
Ekkert smá fínir feðgarnir:)
SvaraEyða