



Löggan sendir Krummanum þennan fína löggubúning. Breiðasta bros vikunnar færist yfir andlit hans. Í fyrsta skipti vill hann prófa að fara í bol. Það gengur vel. Hann er búinn að ganga töluvert um stofuna og deildina í dag. Mjög montinn og vill að ég kalli á kennarana (en hann kallar hjúkrunarfræðingana kennara) til að sýna þeim hversu duglegur hann er.
Lífið heldur víst áfram þó maður eigi barn með hvítblæði svo Músin gerir heimavinnuna sína á spítalanum.
Það er mikið sport að fá að fara út í glugga og vinka afa bless.
Dr. Krummi læknar strumpinn sinn á hverjum degi, mörgum sinnum á dag. Hver veit nema hann verði bara læknir þegar hann fullorðnast.
Yndislegt að sjá breiða fallega brosið á duglega prinsinum ykkar ...hann er aldeilis flottur í löggubolnum
SvaraEyðaknús
Yndisleg mynd af frænda í löggubúningnum :)
SvaraEyðaKnús og baráttukveðjur frá okkur í Hulduhlíðinni.
Ruth frænka. !
aldeilis falleg börnin ykkar.
SvaraEyðaHlýjar kvaðjur til ykkar, Alva.
Elsku Signý mín og Svenni.Skelfilegt að vita þetta.Hugur minn er hjá ykkur.Mikið eru falleg skrifin þín Signý.Báráttukveðja.Didda,frænka.
SvaraEyða