laugardagur, 30. janúar 2010

Helgarleyfi

Við vorum að skoða blóðprufurnar og það er ekkert því til fyrirstöðu að þið farið heim yfir helgina, segir hjúkrunarfræðingur Krummans. Hjartað stoppar í smá stund. Á ég að taka ungan minn og fara úr þessu örugga umhverfi, þar sem er litið eftir honum á klukkustundafresti? Hér getur hann fengið ógleðistillandi, verkjastillandi og næringu í æð eftir þörfum. Ef ég á að velja út frá mínum eigin hagsmunum þá vil ég ekki yfirgefa spítalann. Þá heldur hjúkrunarfræðingurinn áfram; Það gæti verið gott fyrir hann að komast heim núna fyrst hann getur. Hann á náttúrulega eftir að verða veikari og því getur liðið ansi langur tími þar til hann kemst heim. Við sjáum fljótt að það er betra fyrir hann að fara heim og upplifa venjulegt fjölskyldulíf, þó ekki sé nema í tvo daga.

Það er yndislegt að opna dyrnar heima. Tengdamamma er búin að skúra út úr dyrum svo Krumminn litli komi inn á hreint heimili. Við göngum frá pinklum okkar og litla apótekinu sem fylgir okkur. Við erum ekki búin að vera lengi heima þegar dyrabjallan hringir og besti vinurinn fær að kíkja í heimsókn. Hann kemur með risaeðlur sem vekja mikla lukku. Þeir eru hálf feimnir og leika sér meira hlið við hlið en saman. Krumminn vill fá soðinn fisk og kartöflur í kvöldmat og auðvitað er sú ósk uppfyllt. Pabbi fer í enn einn snúninginn fyrir okkur og nær í matinn. Þegar fiskurinn er soðinn og stappaður lokast munnurinn. Það er skrítið bragð af þessu, segir hann. Krumminn verður fljótt þreyttur og er búið um hann upp í sófa á meðan við flytjum rúmið hans inn til okkar. Ég get ekki hugsað mér að sofa ekki við hlið hans og vildi helst hafa hann uppi í rúmi hjá okkur. En honum líður örugglega betur í sínu rúmi með sinn viðkvæma kropp.

Við höfum litlu komið ofan í hann í dag, líkt og síðustu daga og til þess að koma ofan í hann einhverjum vökva bjóðum við honum Coke þegar við höfum þegar reynt vatn, mjólk, kókómjólk og hinar ýmsu djústegundir. Hann verður mjög hissa á svipinn og segir; Má ég fá Coke? Er það gott í kroppinn minn? Við segjum honum að það sé gott í veika kroppa. Hann smakkar og finnst bragðið ekki skrítið og er hæstánægður með að fá að klára hálfa flösku. Við fögnum. Hver hefði trúað því að maður myndi gleðjast yfir gosdrykkju þriggja ára barns síns.

8 ummæli:

  1. Elsku Signý mín og fjölskylda.

    Fylgist með ykkur hér með sting í hjarta.
    Knús og baráttukveðjur!

    Edda í FF

    SvaraEyða
  2. Njótið helgarleyfisins, Gunnar Hrafn er klár strákur og mun sigrast á þessu verkefni.Kv Birgir og Björg

    SvaraEyða
  3. Hulda S. Kristjánsdóttir31. janúar 2010 kl. 08:20

    Elsku Gunnar Hrafn, Signý, Svenni og Regína.

    Hugur okkar er hjá ykkur kæra fjölskylda. Biðjum fyrir ykkur og takk fyrir að lofa okkur að fylgjast svona náið með líðan ykkar.

    Baráttukvejur,
    Gunnar Björn, Hulda og börn.

    SvaraEyða
  4. Elsku Sveinn og Signý. Gangi ykkur vel í baráttunni. Fróðlegt að fylgjast með ykkur og gaman að sjá myndirnar af Gunnari Hrafni, hann er svo mikið krútt. Þór vildi sjá aftur og aftur myndina af honum þegar hann var að lækna strumpinn! Kveðja frá okkur í Arnarási 8, Ína.

    SvaraEyða
  5. Þið standið ykkur svo vel í foreldrahlutverkinu. Mikið er lagt á litla strákinn ykkar og ykkur. Sendi ykkur baráttukveðjur, bloggið ykkar er orðinn fastur bunktur í tilverunni hér hjá mér í Köben.

    Stórt knús,
    Kristín Ása

    SvaraEyða
  6. Alda Björg (Snæló)31. janúar 2010 kl. 12:52

    Elsku Signý og fjölskylda!!
    Er bara í sjokki yfir þessum fréttum!!! Ég á sjálf 2 og 1/2 árs gutta og get rétt ýmindað mér hversu erfitt þetta er!!! En þið virðist vera að standa ykkur eins og hetjur;)En hugur minn er hjá ykkur og Krumminn ykkar í bænum mínum. Baráttukveðjur til ykkar frá mér og ég mun fylgjast með blogginu.
    Kv. Alda Björg (Snæló)

    SvaraEyða
  7. Æ hvað er yndislegt að þið hafið fengið að fara heim um helgina! Eigið eflaust eftir að meta það mikilst þegar á líður. Skál í kóki! :)
    kveðja, Helen

    SvaraEyða
  8. Hæ aftur Gunnar Hrafn.
    Það var virkilega gaman að fá að kíkja í heimsókn til þín. Mér fannst þú bara ekkert vera veikur og ég stend alveg fastur á því að þú munir mæta í leikskólann í fyrramálið. Mér fannst þú ótrúlega duglegur að taka lyfin þín og ég skil ekkert í mömmu afhverju hún vill ekki gefa mér líka svona lyf:)
    Gangi þér vel á spítalanum í næstu viku.
    Þú ert algjör hetja....
    Bestu kveðjur Sveinn Rúnar.

    SvaraEyða