miðvikudagur, 27. janúar 2010

Vonir vakna

Ég skríð upp í rúm hjá Krummanum og Svenni og hjúkrunarfræðingurinn rúlla okkur upp á skurðstofu. Hann fær að sofna í fanginu á mér, haldandi í höndina á Svenna. Honum er rúllað inn á skurðstofuna. Ég get ekki meir. Mamma fylgir honum inn á skurðstofu og finnst okkur gott að vita af því. Hún hringir reglulega í okkur á meðan á aðgerðinni stendur og segir okkur að allt gangi vel. Úr Krummanum er tekið beinmergs- og mænuvökvasýni og í hann græddur lyfjabrunnur, en hann mun fá öll lyf sín næsta 2,5 árið í gegnum hann.

Hvað gerðist? er það fyrsta sem Krumminn segir eftir sína fyrstu svæfingu af mörgum í þessu ferli. Nákvæmlega það sem við erum sífellt að spyrja okkur að. Hvað gerðist? Í gær vorum við heima að leika og dag eigum við barn með krabbamein. Við erum orðið þetta fólk. Þetta fólk sem við höfum fundið til með. Þetta fólk sem maður hefur aldrei búist við að verða. Þetta fólk sem fær ekki örlögum sínum breitt. Þetta fólk sem fetar grýttan stíg sem það neyðist til að fara en hefur ekki valið sér.

Það er ákveðið að byrja strax á lyfjameðferðinni og Krumminn þarf líka að fá stera. Hann kemur okkur öllum á óvart þegar hann gleypir þrjár töflur eins og ekkert sé. Það er okkur mikill léttir því það þarf hann að gera þrisvar á dag í ansi langan tíma. Læknarnir og hjúkurnarfræðingarnir hér á Barnaspítalanum hafa örugglega tekið meistarapróf í Hjartagæskuskólanum. Alls staðar mætum við ótrúlegri hlýju, skilningi og þolinmæði. Það virðist enginn þreytast á að útskýra hlutina fyrir okkur aftur og aftur.

Niðurstöður sýna að mænuvökvinn er hreinn, sem eru mjööög góðar fréttir. Krumminn er með standard hvítblæði sem eru líka góðar fréttir (verra að vera með high risk). Aldurinn hans vinnur með honum og svo er hann líka svo sterkur og duglegur strákur. Okkur líður óneitanlega betur að þessum degi loknum þegar við vitum að lyfin eru farin að vinna á meini hans. Þegar hann kom mældust hvítu blóðkornin hans 80.000 en eðlilegt er 2-4000. Eftir blóðgjöf er talan komin niður í 60.000 og nú eru þau 30.000.

33 ummæli:

  1. Gott að heyra þessar fréttir. Gangi ykkur vel elsku fjölskylda.

    SvaraEyða
  2. Kíki hér eftir á hverjum degi. Allar hugsanir eru hjá ykkur. Gangi ykkur vel

    SvaraEyða
  3. Elsku vinir, við sendum ykkur bestu hughreystikveðjur og fylgjumst með gangi mála hér á blogginu. Þið eruð með frábært fólk í kringum ykkur sem mun gera sitt besta í að létta ykkur lífið. Stórt faðmlag, Eva Hrönn & Þór Vilhelm

    SvaraEyða
  4. Björg Helgadóttir27. janúar 2010 kl. 11:50

    Elsku fjölskylda,
    Sendi hlýjar hugsanir hér líka, sit hér með tárin í augunum að lesa um ykkar erfiðustu stundir en trúi og treysti á að þessar fyrstu fréttir af lyfjagjöfinni séu einmitt vísir að því hversu sterkur og duglegur strákurinn ykkar er. Þetta verður erfitt en hann stendur sterkari uppi á eftir. Það er ekki lagt meira á okkur en við þolum og þið getið allt saman :´). Hugur minn er hjá ykkur!
    Knúskveðjur,
    Björg og Birgir

    SvaraEyða
  5. Elsku Signý, Svenni, Regína og Gunnar Hrafn.
    Hugur okkar Kjósverja er svo sannarlega hjá ykkur.
    Kærar kveðjur, Andrea, Haddi, Kári, Hrafnkell og Ása voffi.

    SvaraEyða
  6. Margrét Breiðfjörð27. janúar 2010 kl. 12:05

    Kæra fjölskylda, þið verðið í bænum mínum og margra vina minna. Knús til elsku Krumma og kveðja til ykkar.
    Samstarfskona Sjafnar

    SvaraEyða
  7. Kæru vinir, ég sendi ykkur baráttukveðjur í því stóra og mikla verkefni sem þið standið frammi fyrir. Litli drengurinn ykkur vinnur þessa baráttu hægt og örugglega umvafinn hlýju ykkar og kærleika. Gangi ykkur vel og munið að þið eigið marga og góða vini sem hugsa hlýlega til ykkar.

    Arnar, vinnufélagi Svenna

    SvaraEyða
  8. Helen Garðarsdóttir27. janúar 2010 kl. 12:35

    Elsku fjölskylda,

    mikið óskaplega tekur mig sárt að heyra þessar fréttir í gærkvöldi frá Elínu. Takk fyrir að skrifa reglulega hér inn til að leyfa öllum að fylgjast með, sem við munum sko gera. Ef það er EITTHVAÐ sem við getum gert til að létta ykkur lífið á þessum erfiðu tímum framundan þá erum við tilbúnar hvenær sem er.
    Knús í hjartað og faðmlag í sálina,
    Helen

    SvaraEyða
  9. Elsku Signý mín...mikið er lagt á ykkur. Þið verðið í bænum mínum. Knús Ellý

    SvaraEyða
  10. Elsku elsku Signý og Svenni og ykkar dásamlegu börn Regína og Gunnar Hrafn. Ég er mjög slegin yfir þessum fréttum og sendi ykkur allar bínar bestu hugsanir og strauma. Ef ég á einhver ítök hjá góðum vættum og góðum Guði þá bið ég þess að Krumminn fái fullan bata og að þetta gangi vel. Mikið eru pistlarnir velskrifaðir, næmni og ást... ég hágrét yfir þeim. Gangi ykkur rosalega vel og ég mun fylgjast með. Baráttukveðjur
    Maj-Britt

    SvaraEyða
  11. Gott að heyra með með mænuvökvann og blóðkornin. Er stöðugt að hugsa til ykkar elsku vinir.
    kv Tinna

    SvaraEyða
  12. Elsku fjölskylda.
    Það falla bara tár þegar ég les þetta. Þið eruð í mínum bænum og er ekkert verra en að horfa upp á barn sitt veikt, en hann virðist vera sterkur drengur og ætlar að sigrast á þessu. Baráttu kveðjur til ykkar.

    Knús Ingunn Hrund Einarsdóttir

    SvaraEyða
  13. Elsku fjölskylda
    Hugsa stöðugt til ykkar. Þið vitið að maður vill ALLT fyrir ykkur gera sem hægt er, bara nefna það! Gangi ykkur vel. Gott að fá að fylgjast með á þennan hátt. Kossar og baráttuknús, Dísa

    SvaraEyða
  14. Elsku besta fjölskylda,
    ég veit varla hvað ég á að skrifa. Langar svo að orðin mín virki sem töfrasproti á Gunnar Hrafn og meinið í kroppnum hans. En ég bið til æðri máttar um að hann hafi ljónin á veginum sem framundan er ekki mörg. Ég dáist af styrk ykkar eins og alltaf, takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.

    Hlýjar kveðjur upp á barnadeild
    Kveðjur
    Diljá

    SvaraEyða
  15. Elsku Svenni og Signý og fjölskylda,

    Það var ömurlegt að fá þessar fréttir og við sendum ykkur okkar bestu kveðjur og hugsum til ykkar með hlýju.

    Með kveðju,

    Gunnar Ásgeirsson og fj.

    SvaraEyða
  16. Kæru þið, gott að fá svona ítarlegar útskýringar og örugglega jafngott fyrir ykkur að skrifa frá ykkur ;)

    Kær kveðja María

    SvaraEyða
  17. Elsku fjölskylda.
    Gangi ykkur vel í þessari baráttu.

    Við hugsum til ykkar og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.

    Kveðja úr Grindavík,
    Hjörtur og fjölskylda.

    SvaraEyða
  18. Elsku Svenni og Signý.

    Við hugsum til ykkar og sendum ykkur sterka baráttustrauma á þessum erfiðu tímum.

    Kveðja Hringur og Dröfn.

    SvaraEyða
  19. Elsku hjartans fjölskylda. Ég er bara dofin eftir þessar fréttir, sit bara við tölvuna og græt. Það er þó gott að það skuli vera góðar fréttir sem þið fáið líka á þessum erfiða tíma. Hugur minn er hjá ykkur núna og bið ég alla góða engla að vaka yfir ykkur.
    Kveðjur úr sveitinni, Anna og fjölsk.

    SvaraEyða
  20. Hugsa til ykkar elsku fjolskylda, sendi mina bestu strauma til ykkar allra, kossar og knus, Aslaug Sif

    SvaraEyða
  21. Kæra fjölskylda.

    Langar bara að segja að Gunnar Hrafn á bestu foreldra í heimi og það mun auðvelda honum þessa baráttu.
    Ég sit hér í Kaupmannahöfn, grenjandi yfir þessum fréttum, og get engan vegin ímyndað mér hvað þið eruð að ganga í gegnum.

    Við að lesa bloggið uppgötvar maður svo sterkt hvað það eina er, sem skiptir mann raunverulegu máli í lífinu.

    Gangi ykkur vel. Ég mun hugsa til ykkar og fylgjast með blogginu.

    Kristín Ása

    SvaraEyða
  22. Vil bara senda á ykkur baráttukveðju...
    Hugsa til ykkar.

    kveðja Björgvin Pródúsent

    SvaraEyða
  23. Kæra fjölskylda vildi bara senda ykkur kveðju og þakka fyrir að fá að fylgjast með ykkur hugur minn er hjá ykkur öllum sendum baráttukveðju og knús.

    Sigún og fjölskylda

    SvaraEyða
  24. Elsku Signý,Sveinn og fjölskylda
    við sendum ykkur okkar bestu hughreystikveðjur. Gangi ykkur vel.
    All our love
    Sólveig, Tony og fjölskylda
    XXX

    SvaraEyða
  25. Fallega fjölskylda,
    Við sendum ykkur hlýjar og kærleiksríkar hugsanir. Þið eruð í bænum okkar.
    Gróa, Svenni og fjölskylda

    SvaraEyða
  26. Hugur okkar er hjá ykkur elsku fjölskylda. Megi algóður Guð halda í hendur ykkar og gefa ykkur allan þann styrk sem þið þurfið á að halda núna. Gleymið aldrei að við erum til staðar ef á þarf að halda. Kyssið Gunnar Hrafn frá okkur #

    Knús kveðja,
    Ruth,Gunni og Óli.

    SvaraEyða
  27. Elsku vinir
    Við erum með ykkur í huga og hjarta, gangi ykkur vel í þessari baráttu ykkar, við erum oft sterkari en okkur grunar.
    Gísli, Una og fjölskylda

    SvaraEyða
  28. Elsku Svenni og Signý,
    Vonandi gengur ykkur vel í þessari baráttu, allar okkar bænir eru hjá ykkur.
    Gummi og Eva

    SvaraEyða
  29. Elskulega fjölskylda,
    Takk fyrir að leyfa okkur að fá að fylgjast með þessu stóra verkefni ykkar - við erum með hugann hjá ykkur.
    Íris og Doddi

    SvaraEyða
  30. Elsku Signý og Svenni.
    Ég sit hér og græt um leið og ég les fallegar frásagnir ykkar af þessari erfiðu baráttu. Guð gefi ykkur styrk í þessari þrautagöngu og elsku litli Gunnar Hrafn er í bænum mínum. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með baráttunni sem þið nú heyjið. Munið að þið eruð ekki ein og ég sé að í kringum ykkur er fullt af fólki sem elskar ykkur og er tilbúið til að hjálpa ef á þarf að halda. Ég vildi bara að ég gæti gert slíkt hið sama, það er á svona stundu sem fjarlægðirnar verða svo óra langar.
    Gangi ykkur vel
    Erna, Hjalti og fjölskylda

    SvaraEyða
  31. Ég ræð ekkert við tárin, en það er hægt að þurrka þau í burtu, eins og það er hægt að losna við hvítblæði ... það tekur bara aðeins lengri tíma. Þetta á allt eftir að fara vel, verkefni sem enginn óskaði sér en það verður klárað. Gangi ykkur sem allra best elsku fjölskylda. Hugsum stöðugt til ykkar og sendum okkar hlýjustu strauma.
    Steinunn, Árni og Brynja

    SvaraEyða
  32. Kæra fjölskylda,

    Slæmar fréttir sem maður fær hingað til Papua New Guinea. Gunnar Hrafn er sterkur strákur og kemur til með að vinna þessa baráttu með aðstoð ykkar og góðra vætta.

    Ég veit að vinir og fjölskyldur ykkar eru eins og þöglir englar, sem lyfta manni upp á fæturna þegar vængir okkar gleyma að fljúga.

    Standið sterk og ekki gleyma að biðja um aðstoð, því það er bara hægt að leggja ákveðið mikið á hvern einstakling.
    Ég hugsa til ykkar og sendi Gunnari STÓRT knús.

    Kveðja frá Papua
    Skjöldur Vattnar

    SvaraEyða
  33. Elsku Signý og fjölskylda

    Hugur minn er hjá ykkur á þessari erfiðu stundu. Framundan er stórt og mikið verkefni og mikið er Gunnar Hrafn heppin að eiga ykkur að. Ég mun fylgjast með baráttunni hjá ykkur og senda mínar bænir til ykkar alla daga.
    Knús til ykkar og stórt knús til litlu hetjunnar.

    Kær kveðja Inga Dís

    SvaraEyða