mánudagur, 1. febrúar 2010
Lok, lok og læs
Elsku allir sem hafa fylgst með okkur og veitt okkur ómetanlegan stuðning með athugasemdum, skilaboðum, símtölum, kveðjum, bænahringjum og öllu hinu. Okkur langar til að koma silaboðum áleiðis til ykkar. Okkur hefur verið ráðlagt að loka blogginu en hafa að því aðgangsorð. Ástæðan fyrir því er að einhverjir veikir einstaklingar eiga það til að rápa inn á svona blogg og koma með óviðeigandi athugasemdir. Við vitum að tengslanetið er með ólíkindum stórt og að það eru ansi margir utan okkar innsta hrings sem hugsa til okkar. Vinir mæðra okkar og feðra, vinnufélagar okkar beggja, gamlir vinnufélagar og skólafélagar, æskuvinir, leikskólakennarar, foreldrar vina barna okkar, fjarskildari fjölskylda og svo ótrúlega margir. Við viljum endilega leyfa ykkur að halda áfram að fylgjast með. Við munum setja lykilorðið á Facebook (við erum nokkuð viss um að við eigum ekki rugludallavini á Facebook) og eins getið þið fengið lykilorðið hjá öllum okkar nánustu eða sent okkur tölvupóst á netföngin signyg@gmail.com eða svennib@gmail.com til þess að fá aðgangsorð. Við munum loka blogginu að öllum líkindum næsta miðvikudagskvöld.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Elsku Signý og fjölskylda
SvaraEyðaSmá kveðja frá okkur. Veit að það er ekkert hægt að segja sem breytir einhverju, en við hugsum hlýtt til ykkar. Gangi ykkur vel
Esther, Matti og fjölskylda
Elskulega fjölskylda
SvaraEyðaÉg sendi ykkur mínar allra bestu kveðjur í
baráttu ykkar. Þið verðið í huga mínum og mér
þætti vænt um að fá að fylgjast með ykkur áfram.
Kærar kveðjur,
Birna, fyrrv. dagmamma
Elsku Signý og fjölskylda.
SvaraEyðaÉg hugsa til ykkar daglega og veit að baráttan er erfið. Get ekki ímyndað mér hvernig er að vera með svona verkefni eins og þið þurfið nú að takast á við.
Ég mun halda áfram að hugsa til ykkar og biðja daglega. Haltu áfram að skrifa Signý, skrifa og skrifa......það hjálpar þér líka að vinna með og skilja baráttuna. Þið eruð svo yndisleg fjölskylda og mikið er gott hvað þið eigið góða að.
Knús og kossar til ykkar
Kær kveðja Inga Dís
Mínar bestu kveðjur til þín og fjölskyldu þinnar Signý.
SvaraEyðaKær kveðja - Kristbjörg fyrrv.vinnufélagi í Digranesskóla.
Elsku signý og fjölskylda.Sendum ykkur okkar bestu kveðjur.Biðjum algóðan guð að umvefja ykkur öll.Kveðja sædís og fjölskylda.
SvaraEyða