mánudagur, 1. febrúar 2010

Englahersveitin og allir hinir

Um leið og við fengum þessar hræðilegu fréttir voru okkar nánustu komnir á stundinni til þess að mynda varnarbelti í kringum okkur. Afarnir, ömmurnar, mágkonan og fjölskylda, frænkurnar, frændurnir, vinkonurnar og vinirnir hafa öll staðið sig eins og hetjur. Það fara örugglega engar sögur í neinum sögubókum af slíku stuðningsneti sem við höfum. Nokkrar vinkonur mínar tóku sig saman, þó að þær hafi sumar hverjar lítið þekkst fyrir, og mynduðu Englahersveitina (nafngiftin er mín). Erkiengillinn með ósýnilegu vængina hefur séð um að koma skilaboðum áleiðis til vinkvennanna ásamt því að sjá um þvott fjölskyldunnar. Nokkrir liðsfélagar hersveitarinnar hafa komið sér saman um að elda fyrir okkur þrisvar í viku og færa okkur mat á spítalann. Aðrir liðsfélagar sjá um að ekki verði sælgætisskortur á sjúkrahúsinu. Englahersveitin teygir líka anga sína yfir Atlantshafið en tveir liðsfélagar hafa verslað á Krummann og móðurina þægileg sjúkrahúsföt, en jafnframt gætt þess að móðirin verði mesta pæjan á deild 22E. Það er gott að eiga góða að.

1 ummæli:

  1. Æ en frábært, þetta hlýtur að vera ómetanlegur stuðningur. Knús til ykkar

    SvaraEyða